Hvað er Íslenski Málhljóðamælirinn ?

Íslenski málhljóðamælirinn er byltingarkennd og nýstárleg lausn í skimunartækni í spjaldtölvu (iPad) sem ætlað er fagaðilum leik- og grunnskóla og stofnana. Með forritinu er unnt að skima og forprófa framburð íslensku málhljóðanna og meta skiljanleika tals um leið. Í lengri hluta greinir forritið sjálfkrafa helstu hljóðkerfisþætti í framburði sem farið verður vel í á námskeiðinu fyrir alla fagaðila. Mælirinn leiðir fagaðila og barn/próftaka áfram á einfaldan og skilvirkan hátt í gegnum skimunina um leið og forritið aflar gagna sem skráð eru í niðurstöðum.